Eftir Emblu, Hauk og Kristinn í 7.L og 7.K
Róbotinn sem við gerðum er samsettur úr legokubbum og alskonar nemum t.d. snerti skynjara, litaskynjara, hljóðnema, nema sem mælir fjarlægð og svo byssu. Hann er á 3 hjólum og eru 2 þeirra knúin áfram af mótorum. Byssan sem hann er með skýtur skotinu um 3.5m og hann er hannaður til að skjóta það sem verður á vegi hans . Erfiðast var að festa heilann við búkinn eða forrita heilann. Haukur sá aðallega um forritun heila og Embla var byggingarverktakinn okkar en Stjáni var að sinna öðrum verkefnum og gerði lítið sem ekkert í þessum róbot. Hann er alveg frumgerður og örugglega ólíkur öllum hinum. Prufukeyrsla á róbotinum tókst vel og hann virkaði eins og hann átti að virka fyndinn og skemmtilegur. Einkunnin frá mér væri 9,5 miðað við hina róbotana.
Tags: Mindstorms NXT